BL+ Lip Renewal Mask
Áhrifarík varameðferð knúin áfram af BL+ COMPLEX™, þróuð til að vinna gegn fínum línum á varasvæði ásamt því að mýkja, slétta og styðja við húðina. BL+ Lip Renewal Mask sameinar BL+ einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni með bakúsíóli og seramíðum til að styðja við kollagenmyndun, styrkja varnarlag varanna og draga úr þurrki. Ríkuleg formúlan nærir á meðan hún mýkir sýnileika fínna lína og bætir áferð. Sérhannað áhald fylgir með til að tryggja auðvelda notkun, örva blóðflæði til vara, bæta aðgengi formúlunnar og árangur meðferðar.
ÁVINNINGUR
Varir eru sjáanlega sléttari, mýkri og með bættri áferð. Sýnleiki fínna lína á varasvæði minnkar á meðan rakastig eykst og varnarlag varanna styrkist.
- Ríkur og nærandi maski sem bráðnar inn í varirnar
- Mýkir ásýnd fínna lína í kringum varirnar
- Sérhannað áhald fylgir með til að auðvelda notkun, örva blóðflæði til vara og bæta aðgengi formúlunnar inn í húðina
- Styður við kollagen fyrir fyllri ásýnd vara
- Nærir djúpt og dregur úr þurrki
- Styður við varnarlag húðar
- Klínískt prófaður
- Án ilmefna
- Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
- Vegan
KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður úr mati þátttakenda eftir 8 vikna vikna notkun á BL+ Lip Renewal Mask*:
- 100% notenda voru sammála um að varan ÞÉTTIR
- 100% notenda voru sammála um að varan BÆTIR ÁFERÐ
- 100% notenda voru sammála um að varan MINNAR SÝNILEIKA FÍNNA LÍNA í kringum varir
- 100% notenda voru sammála um að varan gefi FYLLRI ÁSÝND
- 100% notenda myndu MÆLA MEÐ VÖRUNNI
Niðurstöður mælinga eftir 8 vikna notkun á BL+ Lip Renewal Mask**:
- RAKASTIG á varasvæði jókst um 56% að meðaltali
- DÝPT HRUKKNA MINNKAÐI allt að 55.6%
- Áferð vara varð 12,6% SLÉTTARI að meðaltali
Óháð klínísk rannsókn á 32 konur á aldrinum 30-60 ára eftir 8 vikna notkun, framkvæmd undir eftirliti húðlæknis.
*Niðurstöður úr spurningakönnun
**Rakastig vara var mælt með Corneometer® og dýpt hrukka og áferð vara með PrimosCR® 3D húðgreiningu.
INNIHALDSEFNI
Lykilefni
BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX™ er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni.
BL+ Minerals™ (sölt úr jarðsjó Bláa Lónsins) endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
Bakúsíól 0.5% (bakuchiol), innihaldsefni unnið úr fræjum Psoralea coryfolia-plöntunnar, hefur margvíslegan ávinning sem svipar til virkni retínóls. Það þéttir húðina, bætir áferð, húðtón og eykur ljóma.
Seramíð (ceramides), veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari.
Öll innihaldsefni
RICINUS COMMUNIS (CASTOR) SEED OIL, SQUALANE, GLYCERYL STEARATE, OLEIC/LINOLEIC/LINOLENIC POLYGLYCERIDES, WATER (AQUA), SIMMONDSIA CHINENSIS (JOJOBA) SEED OIL, HYDROGENATED CASTOR OIL, VEGETABLE OIL (OLUS OIL), JOJOBA ESTERS, SEA WATER (MARIS AQUA), PENTYLENE GLYCOL, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED WAX, PROPANEDIOL, LACTOBACILLUS FERMENT, HYDROGENATED VEGETABLE OIL, BAKUCHIOL, CALCIUM KETOGLUCONATE, PUNICA GRANATUM FLOWER EXTRACT, EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX (CANDELILLA CERA), POLYGLYCERYL-3 DIISOSTEARATE, TOCOPHEROL, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, POLYGLYCERIN-3, ACACIA DECURRENS FLOWER WAX, ACMELLA OLERACEA EXTRACT, SORBITAN OLIVATE, GLYCERIN, CERAMIDE NP, LECITHIN, SODIUM HYALURONATE, ALGAE EXTRACT, UNDARIA PINNATIFIDA EXTRACT, SILICA, CAPROIC ACID, CITRIC ACID, SODIUM HYDROXIDE.
NOTKUN
Notið yfir daginn og/eða sem síðasta skref í kvöldrútínunni
- Notið áhaldið til að taka ríkulegt magn af vörunni
- Berið jafnt lag hreinar, þurrar varir og svæðið í kringum þær
- Notið grófari hlið áhaldsins og rennið því mjúklega yfir varirnar og í kringum þær
- Notið léttar strokur eða hringlaga hreyfingar í nokkrar sekúndur til að örva blóðflæði og bæta aðgengi vörunnar
- Leyfið vörunni að smjúga innhúðina. Endurtakið eftir þörfum eða notið sem næturmaska.
ALGENGAR SPURNINGAR
Hentar varan minni húðgerð?
BL+ Lip Renewal Mask hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmum vörum og vörum sem verða gjarnan þurrar. Ilmefnalaus formúlan nærir á sama tíma og hún styrkir varnarlag húðar.
Get ég notað vöruna að degi til?
Já, BL+ Lip Renewal Mask má nota yfir daginn eða að kvöldi sem næturmeðferð.
Hvað gerir vörurna ólíka hefðbundnum varasalva?
BL+ Lip Renewal Mask er meðferð sem er sérstaklega þróuð til að draga úr sýnileika fínna lína í kringum varasvæði, næra og styðja við varnarlag varanna. Varan gerir því meira en að einfaldlega veita raka og næringu, eins og hefðbundinn varasalvi.
Hvernig er áferðin?
Ríkulegur, silkimjúkur maski sem bráðnar inn í varirnar.
Úr hverju er áhaldið framleitt?
Áhaldið er framleitt úr zamak, endingargóðu málmblendi sem er þekkt fyrir slétta áferð og vandaða þyngd. Kælandi yfirborð þess gerir þér kleift að bera vöruna á með nákvæmum og stýrðum hreyfingum, sem eykur bæði virkni og upplifun meðferðarinnar.
Hvert er geymsluþol vörunnar?
Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að hún verði fyrir miklum hitabreytingum.
BL+ Lip Renewal Mask
HVERNIG Á AÐ NOTA
Berið ríkulegt lag á hreinar varir og svæðið í kringum þær. Notið áhaldið til að nudda mjúklega yfir varirnar og varalínuna með léttum og stýrðum hreyfingum í nokkrar sekúndur. Skiljið vöruna eftir til að smjúga inn í húðina. Notið yfir daginn eða að kvöldi til fyrir nóttu.