Frí sending á Dropp-stöð fyrir pantanir yfir 5.500 kr.

djúpt inn í húðina

Derma Scan

Dýpri skilningur á húðinni þinni.

Nýja Derma Scan húðgreiningin okkar greinir 16 þætti húðarinnar og veitir þér dýpri innsýn í meðal annars roða, rakastig, húðlit, ljóma og fleira. Að greiningu lokinni færð þú betri skilning á húðinni þinni ásamt persónulegri húðumhirðuáætlun, sem sniðin er að þínum þörfum undir leiðsögn sérfræðings.

Hvernig virkar þetta?

  1. Bókaðu 45 mínútna tíma á vefsíðunni okkar.
  2. Komdu í verslun okkar að Laugavegi 15 á bókuðum tíma og hittu sérþjálfaðan húðráðgjafa. Einnig er velkomið að mæta án bókunar, með fyrirvara um laust pláss.
  3. Eftir að farði hefur verið fjarlægður hefst húðgreiningin með Eve V og Eve Key tækjunum, sem greina 16 lykilþætti sem tengjast heilsu húðarinnar.
  4. Niðurstöðurnar eru yfirfarnar og útskýrðar af ráðgjafa þínum, sem leiðir þig í gegnum persónulega húðumhirðuáætlun sem sniðin er að þínum þörfum.
  5. Tími til að versla! Þú getur nýtt kostnaðinn af Derma Scan húðgreiningunni (4.900 kr.) upp í kaup á vörum sem mælt er með í þinni persónulegu húðumhirðuáætlun.
  6. Eftir heimsóknina sendum við þér þína persónulegu húðumhirðuáætlun í tölvupósti, svo þú getir fylgt henni eftir heima.

Hvað sýnir Derma Scan?

Í anda vísindalegrar nálgunar Blue Lagoon Skin Science leggjum við áherslu á að greina heilsu húðarinnar. Með greiningunni er hægt að mæla fjölmarga þætti sem gefa innsýn í eiginleika húðarinnar, þar á meðal: 

  • Ójafnan húðtón
  • Rakastig húðarinnar
  • Umfang og mynstur útbrota
  • Fínar línur og hrukkur
  • Roða
  • Stærð svitahola

Þessi greining gefur heildstæða og nákvæma mynd af ástandi húðarinnar á örfáum mínútum, hvernig hún eldist og hvernig best er að styðja við heilbrigði hennar með markvissri húðumhirðu.

Húðumhirða sem er sérsniðin að þér.

Vísindin á bak við sérsniðna húðumhirðu

Er ekki öll húðumhirða eins? Hjá Blue Lagoon Skin Science lítum við öðruvísi á málið. Við teljum að húðin þín eigi aðeins að fá þá umhirðu sem hún þarfnast hverju sinni - og þess vegna þarft þú ekki að giska á hvað hentar henni best.


Með því að sameina háþróaða tækni, sérþekkingu húðráðgjafa okkar og vörur sem byggja á yfir 30 ára rannsóknum á húðheilsu, treystum við ekki á tilviljun þegar kemur að því að ná fram heilbrigðri og fallegri húð.

Sérsniðin húðumhirða inniheldur:

  • Vörur sem sniðnar eru að húðgerð þinni og markmiðum
  • Aðstoð við að setja saman húðrútínu
  • Eftirfylgni með framvindu og árangri
  • Góð ráð og gagnlegar ábendingar um húðheilsu

Derma Scan

Heildstæð yfirsýn - Eve V tæknin notar fimm myndavélar og sjö ljósróf til að greina fjölbreytta þætti sem hafa áhrif á heildarástand og útlit húðarinnar.

Nákvæm greining - Eve Key tæknin skoðar afmörkuð svæði húðarinnar ítarlegar og veitir dýpri innsýn í einstaka þætti hennar.

Húðin þín, greind í rauntíma.

Við tökum persónuvernd alvarlega. Gögnin þín og myndir eru varðveitt með öruggum hætti og verður aldrei miðlað til þriðja aðila án þíns samþykkis.

Settu saman þína húðrútínu

Kemstu ekki til okkar í Derma Scan húðgreiningu? Nýttu þér leiðbeiningar um húðrútínu sem hentar mörgum.