Djúpt inn í húðina
Retínól 101
Allt sem þú þarft að vita um þetta öfluga innihaldsefni.
Retínól er vinsælt innihaldsefni í húðumhirðu sem þekkt er fyrir hæfni sína til að bæta áferð húðarinnar og stuðla að sýnilegum framförum. En þrátt fyrir vinsældir þess er retínól enn ráðgáta fyrir mörgum. Spurningar eins og hvenær sé rétt að byrja að nota retínól, hverjir ættu eða ættu ekki að nota það og hvernig velja eigi retínól sem hentar, geta valdið ruglingi. Þar sem retínól er að finna í fjölmörgum húðvörum er mikilvægt að eyða óvissunni og skilja hvað það er sem gerir þetta innihaldsefni svona sérstakt.
Hvað er retínól?
Þetta öfluga innihaldsefni hraðar á endurnýjun húðfrumna. Ímyndaðu þér húðina að losa sig við gamlar frumur eins og snákur í hamskiptum. Retínól styður við þetta ferli og skilur húðina eftir bjartari og sléttari. Retínól sem fæst án lyfseðils er mildara og hefur aðallega áhrif á yfirborð húðarinnar, sem gerir það að góðum kosti fyrir þá sem vilja draga úr fínum línum og bæta áferð húðarinnar. Lyfseðilsskyld retínóíð eru hins vegar sterkari og fara dýpra inn í húðina og eru oft notuð til að meðhöndla alvarlegri vandamál eins og bólur.
Hvernig á að nota retínól?
Að byrja að nota retínól getur stundum leitt til aukaverkana þar sem húðin getur orðið þurr, rauð og flagnað. Þessar aukaverkanir eru yfirleitt tímabundnar og hægt er að stjórna þeim með því að velja réttan styrk af retínóli huga að réttri notkun.
BL+ Retinol cream 0,3% er hannað til þess að tryggja hámarks virkni á meðan það lágmarkar óþægindi sem oft fylgja retínóli, svo sem ertingu, roða og flögnun.
Við mælum með því að þú innleiðir það smám saman inn í húðrútínuna. Berðu lítið magn, á stærð við dropa, á hreint andlit að kvöldi. Forðastu augnsvæðið. Byrjaðu á því að nota það einu sinni í viku í tvær vikur og svo tvisvar í viku í tvær vikur. Ef húðin þolir það er þér óhætt að auka tíðnina, smám saman þar til það er notað á hverju kvöldi til að flýta fyrir frumuendurnýjun og leyfa retínólinu að vinna sitt verk.
Hvenær ættirðu að byrja að nota retínól?
Því fyrr, því betra. Retínól hefur verið fastur liður í húðumhirðu í mörg ár og er frábær byrjun fyrir alla sem vilja taka húðrútínuna sína á næsta stig. Það er sérstaklega áhrifaríkt fyrir þá sem eru á þrítugsaldri og eldri og vilja endurnýja yfirborð húðarinnar og auka náttúrulegan ljóma hennar
Fyrir þá sem eru að byrja að nota retínól getur verið gott að para það við vöru sem inniheldur andoxunarefni, það veitir húðinni aukna vernd og gerir upplifunina mildari.
Algengar spurningar um retínól
Til eru margar mýtur og áhyggjur tengdar retínóli, en með því að skilja hvernig það virkar er auðvelt að draga úr þeim. Sem dæmi má nefna að þó að retínól þynni ysta lag húðarinnar, þá þykkir það í rauninni dýpri lögin með tímanum, sem leiðir til þess að húðin öðlast hinn eftirsótta ljóma.
Retínól er hægt að nota yfir sumartímann, en þá er sérstaklega mikilvægt að huga að sólarvörn. Retínól getur aukið næmi húðarinnar fyrir sólarljósi og því er ráðlagt að nota sólarvörn daglega þegar efnið er hluti af húðumhirðunni, sérstaklega á björtum og sólríkum dögum.
Ef þú ert ólétt eða með barn á brjósti er almennt mælt gegn því að nota retínól.
Það getur verið flókið að blanda retínóli við önnur virk innihaldsefni eins og alfa-hýdroxýsýrur eða C-vítamín. Sumar húðgerðir geta þolað þessar blöndur, en mikilvægt er að fylgjast með því hvernig húðin bregst við. Ef erting á sér stað er gott að stoppa og byrja á vörunum upp á nýtt, einni í einu. BL+ Retinol cream 0,3% sameinar tvö öflug innihaldsefni sem fara einstaklega vel saman: Retínól og BL+ COMPLEX, sem örvar kollagenmyndun, kemur í veg fyrir niðurbrot kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar.
Retínól getur gjörbreytt húðumhirðunni þinni, sérstaklega þegar það er sameinað með BL+ COMPLEX, og býður upp á margvíslegan ávinning; allt frá því að birta húðina yfir í að slétta hana. Með mildri en áhrifaríkri samsetningu, réttri nálgun og smá þolinmæði, getur retínól orðið traustur hluti af húðrútínu sem stuðlar að heilbrigðari húð til lengri tíma.