Algengar spurningar
Blue Lagoon Skin Science vörur
ERU BLUE LAGOON SKIN SCIENCE VÖRURNAR VEGAN?
Blue Lagoon Skin Science leggur ríka áherslu á framúrskarandi gæði, sjálfbærni og ábyrga framleiðslu. Vörurnar eru ekki prófaðar á dýrum og allar vörur nema tvær vörur í Derma-línunni eru vegan.
Tvær vörur í Derma línunni — Mineral Moisturizing Cream og Mineral Intensive Cream — innihalda acetylated lanolin alcohol og eru því ekki vegan. Þrátt fyrir að vegan valkostir hafi verið skoðaðir, uppfylltu þeir ekki þær kröfur sem eru gerðar um virkni og árangur. Formúlunum hefur því verið haldið óbreyttum til að tryggja stöðugan og áreiðanlegan árangur, sérstaklega með þarfir einstaklinga með psoriasis og viðkvæma húð í huga.
ER ÓHÆTT AÐ NOTA VÖRUR FRÁ BLUE LAGOON SKIN SCIENCE Á MEÐGÖNGU?
Við bjóðum ekki upp á sérstaka vörulínu fyrir barnshafandi eða konur með barn á brjósti. Samkvæmt okkar bestu vitund eru engar þekktar aukaverkanir tengdar notkun húðvara frá Blue Lagoon Skin Science á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur.
Ekki er ráðlagt að nota retinól á meðgöngu eða ef þú ert með barn á brjósti. Við mælum þó alltaf með að ráðfæra sig við lækni eða heilbrigðisstarfsfólk þar sem hver einstaklingur og hver meðganga er einstök.
ERU BLUE LAGOON SKIN SCIENCE VÖRURNAR GLÚTENLAUSAR?
Já, allar vörur frá Blue Lagoon Skin Science eru glútenlausar.
ERU BLUE LAGOON SKIN SCIENCE VÖRURNAR PRÓFAÐAR Á DÝRUM?
Nei, vörur frá Blue Lagoon Skin Science eru ekki prófaðar á dýrum. Blue Lagoon Skin Science leggur áherslu á siðferðilega ábyrga framleiðslu og allar vörur eru framleiddar án dýratilrauna.
INNIHALDA BLUE LAGOON SKIN SCIENCE VÖRURNAR HNETUR?
Ef þú vilt forðast húðvörur með innihaldsefni unnin úr hnetum er gott að hafa í huga að eftirfarandi vörur frá Blue Lagoon Skin Science geta innihaldið sheasmjör, sólblómaolíu eða möndluolíu: Hydrating Cream, Conditioner, Shampoo og Lip Balm innihalda sólblómaolíu, en Algae Mask og Body Oil innihalda möndluolíu.
Vinsamlegast hafðu einnig í huga að vegna mögulegrar krossmengunar á framleiðslustað geta húðvörur frá Blue Lagoon Skin Science innihaldið snefilmagn af hnetum.
Ef þú hefur áhyggjur eða ofnæmi mælum við með að þú ráðfærir þig við lækni og skoðir vandlega innihaldslýsingu (INCI) vörunar á netinu til að meta hvort hún henti þér.
INNIHALDA BLUE LAGOON SKIN SCIENCE VÖRURNAR PARABEN?
Nei, allar vörur frá Blue Lagoon Skin Science eru parabenlausar.
AF HVERJU NOTIÐ ÞIÐ ÁLUMBÚÐIR OG ERU ÞÆR ÖRUGGAR FYRIR HÚÐVÖRURNAR ?
Við leggjum áherslu á að vernda bæði umhverfið og heilsu viðskiptavina okkar. Álumbúðirnar sem við notum eru sérstaklega hannaðar fyrir snyrtivörur og eru húðaðar að innan með varnarlagi sem kemur í veg fyrir beina snertingu milli álsins og vörunnar. Þetta tryggir að varan haldist örugg og virk.
Húðunin uppfyllir reglugerðir um efni sem ætluð eru til snertingar við matvæli og er því örugg fyrir þessa notkun.
Að auki hefur ál lægra kolefnisspor og meiri endurvinnslugildi en mörg önnur umbúðaefni, þar sem hægt er að endurbræða það að fullu og endurnýta án þess að það tapi gæðum.
HVAÐA HÚÐVÖRUR HENTA FYRIR OLÍUKENNDA HÚÐ EÐA HÚÐ SEM Á ÞAÐ TIL AÐ FÁ BÓLUR?
Foaming Cleanser, Silica Mud Mask og Hydrating Cream henta vel fyrir olíukennda húð og húð sem er gjörn á að fá bólur.
Afhending og skilareglur
HVAÐ EF PÖNTUN MÍN BERST SKEMMD?
Við munum senda þér nýjan pakka eins fljótt og auðið er. Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á skinscience@bluelagoon.is sem inniheldur pöntunarnúmerið þitt ásamt mynd af skemmdinni.
HVAÐ EF ÉG VIL SKILA VÖRUM?
Hér finnur þú skilareglurnar okkar.
Lækningalind Bláa Lónsins
HVAR ER LÆKNINGALIND BLÁA LÓNSINS STAÐSETT?
Lækningalind Bláa Lónsins er einkarekin meðferðarmiðstöð sem er eingöngu ætluð gestum í meðferð. Hún er staðsett við Silica Hotel, í um 10 mínútna göngufæri frá Bláa Lóninu og Retreat Hotel.
Í Lækningalindinni njóta gestir fyrsta flokks aðstöðu, hlýlegs og reynslumikils teymis sérfræðinga ásamt einstakri náttúru í hrauninu við Bláa Lónið. Bláa Lónið er einstakur staður fyrir bata, vellíðan og slökun.
Gestir kjósa oft að dvelja á Silica Hotel til að njóta upplifunarinnar til fulls. Lækningalindin starfar þó sem göngudeild og því er einnig hægt að sækja meðferðina frá öðrum hótelum á svæðinu eða ferðast þangað frá Reykjavík.
Í HVERJU FELST PSORIASIS MEÐFERÐIN?
Lækningalind Bláa Lónsins býður upp á persónulega psoriasis meðferð fyrir fólk alls staðar að úr heiminum. Að loknu mati á húðástandi og einstaklingsbundnum þörfum setja húðlæknar okkar saman hvaða meðferð hentar best til að draga úr einkennum psoriasis.
ÞARF ÉG TILVÍSUN FRÁ LÆKNI?
Já, tilvísun frá lækni er nauðsynleg ef óskað er eftir hefðbundinni meðferð sem felur í sér NB-UVB ljósameðferð samhliða böðum í lífvirku lónsvatni. Tilvísun er hins vegar ekki nauðsynleg ef ljósameðferð er ekki hluti af meðferðaráætluninni.
HEFUR LÆKNINGARMÁTTUR JARÐSJÁVAR BLÁA LÓNSINS FYRIR PSORIASIS VERIÐ RANNSAKAÐUR?
Virkni og græðandi eiginleikar jarðsjávar Bláa Lónsins við meðferð psoriasis hafa verið staðfestir með áratugalöngum rannsóknum. Í fræðigreinasafni okkar má finna ítarlegar upplýsingar um sögu, vísindi og virkni psoriasis meðferða Bláa Lónsins.
Náttúruleg meðferð við psoriasis hefur verið í boði hjá Lækningalind Bláa Lónsins frá árinu 1994 og er viðurkennd meðferð við psoriasis af heilbrigðisyfirvöldum.
HVE LENGI Á DAG STENDUR MEÐFERÐIN YFIR?
Hefðbundin náttúruleg psoriasis meðferð fer fram virka daga frá kl. 9:00 til 13:00 og felur í sér:
- 60 mínútna böð í einkasvæði lífvirka Bláa Lónsins
- NB-UVB ljósameðferð samkvæmt ráðleggingum húðlæknisNotkun á húðmeðferðarvörum frá Blue Lagoon ásamt líkamsvafningi
- Daglegt eftirlit og eftirfylgni frá hjúkrunarfræðingum
- Handklæði, baðsloppur og inniskór til afnota í Lækningalindinni
- Aðra 60 mínútna baðmeðferð
Athugið að í sumum tilvikum er ekki talin þörf á UVB ljósameðferð sem hluta af meðferðinni. Þá er tilvísun frá lækni ekki krafa fyrir náttúrulega psoriasis meðferð.
FYRIR HVERJA ER PSORIASIS MEÐFERÐIN?
Psoriasis meðferðin er ætluð einstaklingum með psoriasis sem leita að náttúrulegri og róandi meðferð til að draga úr einkennum sem oft fylgja sjúkdómnum, svo sem húðertingu, roða og öðrum óþægindum.
Meðferðin er veitt af Lækningalind Bláa Lónsins, þar sem einstakt umhverfi styður við vellíðan, slökun og bata. Hvert skref meðferðarinnar er sniðið að þörfum hvers einstaklings fyrir sig og framkvæmd undir handleiðslu hjúkrunarfræðinga og húðlækna til að tryggja sem bestan árangur.
Tilvísun frá lækni er nauðsynleg fyrir hefðbundna meðferð sem felur í sér böðun, UVB ljósameðferð og sérhæfða umönnun með húðmeðferðarvörum frá Bláa Lóninu.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafðu samband við okkur á health@bluelagoon.is
HVE LENGI STENDUR PSORIASIS MEÐFERÐ YFIR?
Mælt er með að hefðbundin psoriasis meðferð standi yfir í tvær vikur (10 virka daga), ásamt áframhaldandi eftirfylgni heima með húðmeðferðarvörum okkar.
HVERNIG BÓKA ÉG PSORIASIS MEÐFERÐ?
Vinsamlegast hafðu samband við okkur með því að senda tölvupóst á health@bluelagoon.is eða í síma (+354 420 8952).
VANTAR ÞIG FREKARI UPPLÝSINGAR UM LÆKNINGALIND BLÁA LÓNSINS?
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um Lækningalind Bláa Lónsins, náttúrulegu psoriasis meðferðina eða húðmeðferðarvörur okkar, vinsamlegast hafðu samband með því að senda tölvupóst á health@bluelagoon.is eða í síma (+354 420 8952).
Sérhæfðir hjúkrunarfræðingar Lækningalindarinnar geta einnig veitt ráðgjöf varðandi tiltekin húðvandamál og leiðbeint um val á vörum.