VIÐ GÖNGUM LENGRA
Okkar sjálfbæra nálgun
Ísland er heimili eins stórkostlega náttúruundurs jarðar, Bláa Lónsins. Þess vegna eru allar ákvarðanir okkar teknar í samvinnu við náttúruna, vísindin og umhverfið.
Betri umbúðir
Umkringd Atlantshafinu berum við ríka ábyrgð á að vernda hafið og náttúruna sem umlykur okkur. Þess vegna leggjum við áherslu á umbúðir sem samræmast þeirri sýn - úr 100% endurvinnanlegu gleri, áli og FSC-vottuðum pappír. Glerflöskur og krukkur okkar eru úr ljósþolnu UV-gleri sem lengir geymsluþol formúlanna. Að notkun lokinni hvetjum við til endurvinnslu, svo hráefnin öðlist nýtt líf.
LÆRÐU MEIRA UM
Okkar samfélagslegu ábyrgð
Ein af grunnstoðum BL+ er virðing fyrir umheiminum og samfélaginu okkar. BL+ úr Bláa Lóninu styrkir margvísleg góðgerðarmál á sviði íþrótta, lista, heilsu og velferð ungmenna í nærsamfélögum á Reykjanesskaga, sem og um allt land. Við trúum því að sjálfbærni snúist um meira en áhrif okkar á umhverfið - hún snýst um áhrif okkar á hvert annað.
Okkar vottanir
Örþörungar, kísill og jarðsjór úr Bláa Lóninu eru hráefni sem samþykkt eru af COSMOS. Formúlur BL+ serumsins og BL+ augnserumsins eru 100% af náttúrulegum uppruna og innihalda aðeins COSMOS NATURAL-samþykkt hráefni. Einnig eru þessar vörur vottaðar af Ecocert sem er strangasti umhverfisstaðallinn sem til er fyrir snyrtivörur og endurvinnanlegar umbúðir.
Okkar skuldbindingu til endurvinnslu
Allar BL+ umbúðirnar hvetja neytendur til endurvinnslu. Hvort sem um er að ræða FSC-vottaða pappírinn í ytri umbúðunum, eða glerflöskurnar sem innihalda serumin okkar, eru allar BL+ vörurnar hannaðar þannig að neytendur geta auðveldlega endurunnið þær. Þegar glerið er endurunnið á réttan hátt er það mulið og brætt áður en það er mótað í nýjar flöskur eða krukkur. Ennfremur vinnum við með Pure North Recycling á Íslandi til þess að endurvinna allt plast sem framleitt er í rannsóknar- og þróunarmiðstöð okkar með endurnýjanlegri jarðvarmaorku.