Skil og endurgreiðslur
Vefverslun
Framvísun reiknings eða skilamiði eru skilyrði fyrir vöruskilum.
Eftir að kaupandi hefur móttekið vöru er hann hvattur til að yfirfara vöruna og ganga úr skugga um að reikningur sé í samræmi við pöntun. Viðskiptavinur hefur rétt á að skila ógallaðri vöru í allt að 14 daga frá því að viðskiptavinur veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðsla vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda.
Við vöruskil gilda eftirfarandi skilyrði:
- Að varan sé í fullkomnu lagi
- Að varan sé ónotuð
- Að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum
Blue Lagoon Skin Science metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef skilyrðum er áfátt.
Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það um leið og galla er vart með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: skinscience@bluelagoon.is, að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt hjá Blue Lagoon Skin Science. Gölluð vara er endurgreidd ásamt sendingarkostnaði eða annað eintak af sömu vöru er sent til kaupanda honum að kostnaðarlausu.
Vörum með skilamiða fæst skilað innan þess tíma sem tilgreindur er á skilamiðanum, aðeins er gefin út inneignarnóta sem miðast við verð vörunnar við skil nema að reikningi sé framvísað. Kaupandi sendir beiðni um skil á netfangið: skinscience@bluelagoon.is kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda. Hægt að er að skila gegn skilamiða í verslun Blue Lagoon Skin Science Laugavegi 15 en þá einungis hægt að skipta yfir í aðra vöru eða fá inneignarnótu sem gildir af húðvörum.
Verslanir Blue Lagoon Skin Science Laugavegi 15 og Svartsengi:
Kvittun fyrir kaupum eða skilamiði eru skilyrði fyrir vöruskilum.
Viðskiptavinur getur skilað ógallaðri vöru í allt að 14 daga frá þeirri dagsetningu sem vísað er til á kvittun og fengið hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðslan miðast við það söluverð sem tilgreint er á kvittun fyrir kaupunum. Eftir 14 daga frá vörukaupum er gefin út inneignarnóta samkvæmt söluverði vörunnar á kassakvittun. Skilafrestur er að hámarki 30 dagar en eftir 14 daga þá er einungis hægt að fá inneignarnótu.
Við vöruskil gilda eftirfarandi skilyrði:
- Að varan sé í fullkomnu lagi
- Að varan sé ónotuð
- Að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum
Blue Lagoon Skin Science metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef skilyrðum er áfátt.
Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin. Vöruskil eldri en 14 dagar á þó alltaf að afgreiða með inneignarnótu.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það í næstu verslun eða með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: skinscience@bluelagoon.is um leið og galla er vart. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Gölluð vara er endurgreidd ef kvittun er til staðar og/eða annað eintak af sömu vöru afhent kaupanda.
Vörum með skilamiða fæst skilað innan þess tíma sem tilgreindur er á skilamiðanum, aðeins er gefin út inneignarnóta eða hægt að skipta í aðra vöru sem miðast við verð vörunnar við skil nema að reikningi sé framvísað.