Frí sending á Dropp-stöð fyrir pantanir yfir 5.500 kr.

BL+ Eye Serum flaska á hvítum bakgrunni
BL+ The Serum á bláum bakgrunni
Módel með BL+ Eye Serum
BL+ The Eye Serum með sjónrænum áherslum sem draga fram lykilinnihaldsefni og formúlu
Módel með BL+ Eye Serum
BL+ Eye Serum flaska á hvítum bakgrunni

BL+ Eye Serum

Áhrifaríkt augnserum sem veitir öflugan raka, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu. BL+ Eye Serum inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem vinna á dökkum baugum, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens auk þess að verja húðina gegn umhverfismengun með andoxunarvirkni. Með reglulegri notkun verður augnsvæðið rakafyllt, þéttara, og bjartara og frísklegra ásýndum.

Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.

17.900 kr
Stærð10 ml

ÁVINNINGUR

Viðkvæmt augnsvæðið verður bjartara, frísklegra, þéttara og fær mikinn raka djúpt niður í húðlögin. Formúlan dregur úr sýnileika fínna lína, hrukkna og þreytumerkja auk þess að minnka þrota.  

  • Kælandi stálrúlla frískar, tryggir auðvelda notkun
  • Létt og fíngerð áferð
  • Klínískt prófað
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Vegan

KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður klínískrar rannsóknar eftir 8 vikna notkun, framkvæmd undir eftirliti húðlækna:

Þroti 

64% notenda höfðu sýnilega minnkun á þrota/pokum undir augum 

Dökkir baugar

67% notenda höfðu sýnilega minnkun á dökkum baugum

Raki

100% notenda sýndu marktæka hækkun á rakastigi húðar þegar mælt var með Corneometer®  

Þéttleiki 

Notendur höfðu marktæka aukningu í þéttleika húðar sem metið var af húðlækni  

Hrukkur 

Notendur höfðu verulega minnkun á dýpt hrukkna 30 mínútum eftir notkun (stakt skipti) sem mælt var með Primos 3D.  

INNIHALDSEFNI

Lykilefni: 

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni. 

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS hleður húðina nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur heildarvirkni formúlunnar.

C-VÍTAMÍN gerir húðina bjartari og hlutleysir sindurefni.

ÞRJÁR GERÐIR HÝALÚRÓNSÝRA tryggja rakagjöf niður í dýpstu húðlögin.

LAKKRÍSRÓT minnkar sýnileika dökkra bauga með því að draga úr framleiðslu melaníns.

KOFFÍN dregur úr þrota og gerir húðina bjartari.

Öll innihaldsefni: 

WATER (AQUA), SEA WATER (MARIS AQUA), GLYCERIN, PENTYLENE GLYCOL, SODIUM HYALURONATE, ASCORBYL GLUCOSIDE, SODIUM LEVULINATE, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM ANISATE, LECITHIN, CAMELLIA SINENSIS LEAF EXTRACT, LACTOBACILLUS FERMENT LYSATE FILTRATE, PUNICA GRANATUM EXTRACT, SODIUM HYDROXIDE, PHENETHYL ALCOHOL, CHLORELLA VULGARIS EXTRACT, BIOSACCHARIDE GUM-1, ALGAE EXTRACT, ALTEROMONAS FERMENT EXTRACT, LACTOBACILLUS FERMENT, SILICA, CAFFEINE, GLYCYRRHIZA GLABRA (LICORICE) ROOT EXTRACT, SODIUM CARRAGEENAN, GLYCERYL CAPRYLATE, JANIA RUBENS EXTRACT, CITRIC ACID, TOCOPHEROL.

NOTKUN

  1. Notið kvölds og morgna eftir hreinsun.
  2. Setjið kælandi stálrúlluna undir miðja augnbrúnina og dragið hana í hálfhring; út að ytri augnkrók og áfram undir augað.
  3. Þrýstu augnseruminu gætilega inn í húðina með baugfingri.
  4. Ráð: Notaðu BL+ Eye Serum yfir daginn til að fríska upp á þreytt augnsvæðið eða draga úr þrota.

ALGENGAR SPURNINGAR

Þarf ég bæði BL+ The Serum og Eye Serum?

Formúlurnar eru ólíkar þar sem BL+ Eye Serum inniheldur virk efni sem vinna sérstaklega gegn þreytumerkjum; dökkum baugum og þrota, sem eru algeng á viðkvæmu augnsvæðinu. Við mælum með BL+ The Serum fyrir allt andlitið. Það er tilvalið að nota báðar vörurnar samtímis, kvölds og morgna – fullkomin samsetning sem vinnur gegn öldrunareinkennum húðarinnar. 

Hentar BL+ Eye Serum minni húðgerð? 

BL+ Eye Serum hentar öllum húðgerðum. Ef þú hefur mjög viðkvæma húð, þá mælum við með að prófa vöruna fyrst á litlu húðsvæði. Hættu notkun og hafðu samband við húðlækni ef erting kemur fram. 

Hvernig er áferðin?

BL+ Eye Serum er fíngerð, létt og ilmefnalaus formúla. Klístrast ekki og gengur hratt inn í húðina. 

Hversu lengi endist glasið?

10 ml glasið endist í 3-4 mánuði ef varan er notuð tvisvar á dag. 

Hvert er geymsluþol vörunnar?

Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að flaskan verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda. 

 

BL+ Eye Serum

17.900 kr

HVERNIG Á AÐ NOTA

Notið kvölds og morgna eftir hreinsun. Setjið kælandi stálrúlluna undir miðja augabrúnina og dragið hana í hálfhring að ytri augnkrók og áfram undir augað. Þrýstið augnseruminu gætilega inn í húðina með baugfingri. Ráð: Notið kælandi stálrúlluna eftir þörfum yfir daginn til að fríska upp á augnsvæðið og draga úr þrota.

Overall rating: 4.9428573 / 5 from 35 reviews.

AI Generated Review Summary

Summary topics

Review topics: ["feeling","skin","eyes","difference","serum","cream","effect","application"].

Review highlights

Reviews

Eyes look brighter and more rested

"I absolutely love the BL+ Eye Serum. The cold metal roller head applicator feels amazing and soothing, and my eyes look brighter and more rested. It has become a permanent part of my skincare routine. Highly recommend!"

Freia (5/5)

cooling and refreshing

"coolness . . . avoids dark shadows"

Kathrin (5/5)

Great

"It has an incredible effect on the eyes, but its freshness also improves your mood. I recommend this product."

Cédric A. (5/5)

Comfy treatment

"The skin is soft and gentle. Need some time but the result comes. The applicator is very comfortable."

Petra (5/5)

Fresh awakening

"Cooles down tired eyes :)"

Kathrin (5/5)

Refreshment for the eyes

"Refreshing."

Kathrin (5/5)

Cooling

"I just tried the eye serum, love the cooling effect!"

Claudine (5/5)

Perfect

"This don't irritate my eyes like other products I've used in the past"

Wendy h. (5/5)

Wonderfull

"The Best !"

Doris (5/5)

Scholtes

"I've just tried this eye serum less than 1 week. And I'm beginning to notice how this serum started reducing somewhat of my under eye puffiness. I've just ordered the Eye cream and looking forward to use it pairing it with the eye serum"

Hedy (5/5)

Q&A