Frí sending á Dropp-stöð fyrir pantanir yfir 5.500 kr.

Nýtt

BL+ Cleansing Balm

Nærandi hreinsir knúinn áfram af BL+ COMPLEX. Varan leysir upp farða og óhreinindi og styrkir varnarlag húðar.

BL+ Cleansing Balm inniheldur BL+ einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni og nærir húð, augnhár og augabrúnir á sama tíma og hann leysir upp óhreinindi og skilur húðina eftir endurnærða og ljómandi.

4.500 kr
Stærð25ml

ÁVINNINGUR

Húðin verður hrein, endurnærð og ljómandi. Farði og óhreinindi eru leyst upp á sama tíma og varnarlag húðarinnar styrkist. 

  • Silkimjúk áferð sem bráðnar við snertingu
  • Leysir auðveldlega upp farða, sólarvörn og óhreinindi
  • Nærir húð, augnhár og augabrúnir
  • Styrkir og verndar varnarlag húðarinnar
  • Skolast auðveldlega af
  • Stíflar ekki svitaholur
  • Klínískt prófaður
  • Ilmefnalaus
  • Rekjanleg innihaldsefni
  • Vegan

Hentar öllum húðgerðum, þar með talið viðkvæmri húð og húð með veiku varnarlagi sem þarfnast mildrar hreinsunar.

KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR

Niðurstöður neytendakönnunar eftir eina notkun:

100% notenda voru sammála um að varan fjarlægi farða af andliti og augum á áhrifaríkan hátt
100% notenda voru sammála um að varan skilji húðina eftir hreina, mjúka og slétta
100% notenda voru sammála um að varan skilji ekki eftir fitukennda áferð
100% notenda voru sammála um að varan sé mild við húðina
97% notenda upplifðu þægindi og jafnvægi í húð
100% notenda upplifuð aukinn raka í húð
100% notenda myndu mæla með vörunni

Klínískar prófanir undir eftirliti húðlækna:

Rakastig húðar jókst um allt að 33% eftir eina notkun

*Byggt á klínískri prófun og neytendakönnun á 33 konum (30-60 ára, allar húðgerðir). Rakastig mælt með mælitækjum eftir eina notkun. Fjarlæging farða og sólarvarna metin af þjálfuðum sérfræðingum með flúorljómunaraðferð. Niðurstöður sjálfsmats skráðar eftir eina notkun.

INNIHALDSEFNI

Lykilefni

BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX™ er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.

Öll innihaldsefni:

CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL, COCO-CAPRYLATE/CAPRATE, GLYCERYL BEHENATE, EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX (CANDELILLA CERA), POLYGLYCERYL-2 LAURATE, SEA WATER (MARIS AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, PERLITE, TOCOPHEROL, WATER (AQUA), PENTYLENE GLYCOL, GLYCERIN, LECITHIN, ALGAE EXTRACT, SILICA, CITRIC ACID, SODIUM HYDROXIDE. 

NOTKUN

  1. Notið kvölds og morgna, sem fyrsta skref í húðrútínu.
  2. Berið á þurra húð og nuddið varlega yfir andlit, augu, augnhár og augabrúnir til að leysa upp farða og óhreinindi.
  3. Bætið volgu vatni við og skolið síðan vandlega.
  4. Fylgið eftir með BL+ vörum eftir húðgerð og sólarvörn yfir daginn.

ALGENGAR SPURNINGAR

Hentar BL+ Cleansing Balm minni húðgerð?
BL+ Cleansing Balm hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð. Formúlan er ilmefnalaus og hreinsar á áhrifaríkan hátt og viðheldur jafnframt mýkt húðarinnar.

Fjarlægir varan augnfarða?
Já. Varan leysir upp augnfarða á áhrifaríkan hátt og nærir jafnframt augnhár og augabrúnir.

Þarf ég tvöfalda hreinsun?
Hreinsinn er hægt að nota einn og sér eða sem fyrsta skref í tvöfaldri húðhreinsun.

Hvernig er áferðin?
BL+ Cleansing Balm hefur silkimjúka áferð. Varan bráðnar og verður að olíu þegar henni er nuddað á húðina og breytist svo í mjólkurkennda áferð þegar hún kemst í snertingu við vatn.

Hvert er geymsluþol vörunnar? 
Eftir að varan hefur verið opnuð er geymsluþolið sex mánuðir. Til að tryggja gæði vörunnar skal forðast að hún verði fyrir miklum hitabreytingum.

BL+ Cleansing Balm

4.500 kr

HVERNIG Á AÐ NOTA

Nuddið á þurra húð og einbeitið ykkur að svæðum með farða eða uppsöfnuðum óhreinindum. Bætið volgu vatni við til að leysa vöruna upp og skolið vandlega. Fylgið eftir með BL+ vörum eftir húðgerð og sólarvörn yfir daginn.