Frí heimsending á pöntunum 9.900 kr+

Signature Masks

Gjafasett sem inniheldur einstaka lífvirka andlitsmaska Bláa Lónsins í fullri stærð. Settið inniheldur: Silica Mud Mask (75 ml), Algae Mask (75 ml), Mineral Mask (75 ml) og Lava Scrub Mask (75 ml).

34,500 kr (46,000 kr VIRÐI)

ÁVINNINGUR

Settið inniheldur:

SILICA MUD MASK

Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum. 

MINERAL MASK

Öflugur rakagefandi andlitsmaski sem inniheldur lífvirkan og steinefnaríkan jarðsjó Bláa Lónsins. Byggir upp rakastig húðar, mýkir og gefur húðinni líflegra yfirbragð. 

ALGAE MASK

Nærandi andlitsmaski sem kallar fram náttúrulegan ljóma húðarinnar og dregur úr sýnileika fínna lína og hrukkna. 

LAVA SCRUB MASK

Endurnýjandi svartur leirmaski sem fjarlægir dauðar húðfrumur á mildan hátt og stuðlar að frumuendurnýjun, þökk sé hins lífvirka hrauns Bláa Lónsins 

INNIHALDSEFNI

Sjá einstaka vörur fyrir öll innihaldsefni.

NOTKUN

Veljið þann maska sem hentar þörfum húðarinnar hverju sinni eða notið fleiri en einn saman til að veita mismunandi svæðum húðarinnar sérsniðna umhirðu. Maskana má nota hvern fyrir sig, hvorn á eftir öðrum eða samtímis á mismunandi svæði andlitsins.

Algae Mask: Berið ríkulega og jafnt á hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið liggja á húðinni í 5–10 mínútur og skolið af með volgu vatni. Notið eftir þörfum eða 2–3 sinnum í viku.

Lava Scrub Mask: Vætið fingurna og berið varlega á andlit og líkama með léttum hringlaga hreyfingum. Forðist augnsvæðið og skolið af með volgu vatni. Notið eftir þörfum eða 1–2 sinnum í viku.

Silica Mud Mask: Berið ríkulega og jafnt á hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið liggja á húðinni í 5–10 mínútur og skolið af með volgu vatni. Notið eftir þörfum eða 2–3 sinnum í viku.

Mineral Mask: Berið ríkulega og jafnt á hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið liggja á húðinni í 10–20 mínútur eða yfir nótt og skolið af með volgu vatni. Notið eftir þörfum eða 2–3 sinnum í viku.

ALGENGAR SPURNINGAR

Hver er munurinn á fjórum andlitsmöskum Bláa Lónsins? 

Við höfum dregið saman helstu eiginleika hvers andlitsmaska: Lava Scrub Mask fjarlægir dauðar húðfrumur og endurnýjar. Silica Mud Mask djúphreinsar og styrkir varnarlag húðarinnar. Mineral Mask veitir raka og endurlífgar. Algae Mask nærir og eykur ljóma. 

Hvenær þarf ég andlitsmaska?  

Andlitsmaskar eru góðir til að takast á við sértæk húðvandamál eða til að bæta almenna húðheilsu þar sem þeir innihalda mikið magn af virkum efnum, vítamínum og næringarefnum. Andlitsmaskar eru hannaðir til að mynda lag yfir húðinni. Það tryggir aukna upptöku virkra innihaldsefna þar sem innihaldsefnin fá lengri tíma í snertingu við húðina. 

Hvert er geymsluþol varanna? 

Eftir að þær hafa verið opnaðar, þá er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum – hita og kulda. 

Signature Masks

34,500 kr

Vörur sem þér gæti líkað

Overall rating: 5.0 / 5 from 3 reviews.

AI Generated Review Summary

Summary topics

Review topics: [].

Review highlights

Reviews

You won ´ t regret !

"Amazing products!!!! Worth to buy :-)"

— Barbara (5/5)

All are amazing

"I tried 3 of them at the spa and had to have more! I love the hydrate & revitalize as an overnight skin rejuvenator."

— Sondra B. (5/5)

All together

"Got them all, Not in the bundle, tried each at the spa, bought them seperately. Each one is worth. But my favorite is black and Blue :)"

— Kathrin (5/5)

Q&A