Ómissandi fyrsta skref. Hreinsar og undirbýr húðina.
Vika 1: Hreinsun
Í þessari rútínu:
Silica Mud Mask — Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.
BL+ Cleansing Balm — Nærandi hreinsir sem leysir upp farða og óhreinindi og styrkir um leið varnarlag húðar. Skilur húðina eftir endurnærða og ljómandi.
Notkun:
1. Berið BL+ Cleansing Balm á þurra húð og nuddið varlega yfir andlit, augu, augnhár og augabrúnir til að leysa upp farða og óhreinindi. Bætið volgu vatni við og skolið síðan vandlega.
2. Fylgið eftir með Silica Mud Mask. Berið ríkulega og jafnt yfir hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku.