Allt um Retínól
Kynntu þér ávinninginn af retínóli, afleiðu A-vítamíns sem stuðlar að endurnýjun húðfrumna og gefur húðinni sléttari og bjartari áferð. Lærðu hvernig þú getur innleitt þetta öfluga innihaldsefni á áhrifaríkan hátt...
Í meira en 30 ár höfum við stundað rannsóknir á jarðsjó Bláa Lónsins og leitast við að skilja áhrif hans á húðina.
Við höfum greint einstök lífvirk innihaldsefni sem eiga sér enga hliðstæðu í heiminum og fengið einkaleyfi á að nýta virkni þeirra til að styrkja húðina og styðja við endurnýjun hennar.
Í gegnum árin höfum við gefið út fjölda greina í alþjóðlegum vísindatímaritum ásamt því að leggja áherslu á að vörur okkar séu klínískt prófaðar af óháðum, þriðja aðila.
Vísindin hafa því ávallt verið í forgrunni í okkar starfi og við kynnum því með stolti nýtt nafn vörumerkisins. Nafn sem endurspeglar áralangt vísindastarf sem liggur að baki húðvörunum.
Eins og Hólmfríður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skin Science, orðar það:
„Í meira en 30 ár hefur starf okkar og vöruþróun verið leitt af rannsóknum, ekki tískustraumum. Nafnið Blue Lagoon Skin Science undirstrikar það sem hefur alltaf aðgreint okkur: vísindaleg nálgun, einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni og skýr stefna um að leita nýrra leiða til að efla heilbrigði húðarinnar.“
Kynntu þér ávinninginn af retínóli, afleiðu A-vítamíns sem stuðlar að endurnýjun húðfrumna og gefur húðinni sléttari og bjartari áferð. Lærðu hvernig þú getur innleitt þetta öfluga innihaldsefni á áhrifaríkan hátt...
Iðnhönnuðurinn Sigga Heimis er heilluð af möguleikum og fegurð glers og að hennar dómi má lýsa lífvirku vatni Bláa Lónsins með sömu hugtökum. Hún segir hér frá innblæstrinum að baki innsetningunni „Undur í hverjum dropa“ sem prýðir...
Kynntu þér samstarf Blue Lagoon Skincare og hönnunarvörumerkisins VIGT. Handunnin maskastandur innblásinn af helgisiðum hversdagsins og tímalausri fegurð Bláa Lónsins.